Medicalert og Víðarr

Medicalert er alþjóðlegt fyrirtæki sem kom hingað til lands upp úr 1980 og alla tíð verið undir verndarvæng Lionshreyfingarinnar á Íslandi. Medicalert er óhagnaðardrifið. Framan af þurfti hreyfingin að styðja við reksturinn með fjárframlögum í formi styrkja frá einstöku klúbbum og stóð Víðarr sig vel í því. Nú er fyrirtækið farið að standa undir sér og ekki lengur baggi á hreyfingunni.  Nokkur sjúklingafélög eiga aðild að rekstrinum og má nefna Hjartaheill, Diabetes félagið, Lauf, samtök flogaveikra, Alzheimer samtökin, Nýrnasjúkdóma félagið og Sjálfsbjörg.  Tvö þeirra eiga fulltrúa í stjórn, ásamt þremur Lions félögum. Guðmundur Bjarnason Víðarrs félagi, sat í stjórn í mörg ár Undirritaður sat í allmörg ár sem skoðunarmaður reikninga.  Læknar þurfa að koma að og fara yfir allar umsóknir til að ákveða hvaða upplýsingar fara á merkin. Undirritaður kom inn skömmu fyrir síðustu aldamót en þá var einn læknir, Magnús B Einarsson sem reyndar var allt í öllu í Medicalert. Við vorum þrír sem komum inn samtímis en tveir hættu fljótlega vegna mikilla anna.  Við Magnús vorum tveir alllengi en hann hætti skyndilega 2012 og ég var einn í nokkur ár en gat fengið til mín tvo lækna til viðbótar, annan úr Víðarri, Hjört Oddsson.  Nú er í vinnslu að fá fleiri lækna til hjálpar.  Ég útbý skema fyrir okkur tvisvar á ári en við mætum einu sinni í viku.  Tíma okkar ætti að skrá sem vinnuframlag af ritara en ég hef ekki passað nógu vel upp á það.

Björn Guðmundsson